Ráðhúsið

Hlaðvarp um sveitarstjórnarmál.

Episodes

May 12, 2026

27 min

Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hún fer yfir helstu atriði komandi sveitarstjórnarkosninga. Við ræðum meðal annars framkvæmd kosninganna, hvað kjósendur þurfa að hafa í huga og hlutverk og ábyrgðir kjörstjórna.

May 12, 2026

27 min

Mar 16, 2026

14 min

Stafræn ráðstefna sveitarfélaga árið 2026 verður haldin þann 25. mars n.k. í Grósku. Í þætti dagsins fáum við Sólveigu Ástudóttur Daðadóttur til að segja okkur frá því helsta sem verður á boðstólnum á ráðstefnunni. Skráningu lýkur föstudaginn 20. mars. https://www.samband.is/vidburdir/stafraen-radstefna 

Mar 16, 2026

14 min

Mar 5, 2026

28 min

Í þessum þætti fræðir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, okkur um framboðsfrest, meðmælalista og hlutverk kjörstjórna við yfirferð framboða. Við komum líka inn á listabókstaf, persónukjör og listakjör - og hvað gerist ef aðeins einn listi býður sig fram. 

Mar 5, 2026

28 min

Feb 19, 2026

31 min

Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja? Í þessum þætti ræðir Bryndís við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja, og í lokin deilir Íris hagnýtum ráðum til þeirra sem vilja kveikja svipaðan neista heima hjá sér. Hlustaðu núna—og deildu þættinum með einhverjum sem hefur áhuga á skóla- og sveitarstjórnarmálum.
 

Feb 19, 2026

31 min

Feb 3, 2026

31 min

Í desember 2025 kom út skýrslan "Brúum umönnunarbilið - Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps" en aðgerðarhópurinn var skipaður af forsætisráðuneytinu í framhaldi af undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Helga María Pálsdóttir sviðstjóri stjórnsýslusviðs hjá Sambandinu kom að vinnu aðgerðarhópsins og fjallar um helstu tillögur. 

Feb 3, 2026

31 min

Jan 8, 2026

30 min

Í þessum fyrsta þætti ársins er árið 2025 gert upp í hagfræðilegum skilningi út frá sjónarhorni sveitarfélaganna Meðal þess sem er rýnt í eru tölur um fólksfjölgun, skattekjur, innviðafjárfestingar, atvinnuleysi, veltu atvinnugreina og gjaldskrárhækkanir. 

Jan 8, 2026

30 min

Dec 18, 2025

24 min

Virk ungmennaráð eða formsatriði? Í þætti vikunnar er rætt við Ingimar Guðmundsson, verkefnastjóra hjá Sambandinu, um stöðu ungmennaráða og ráðstefnu ungmennaráða sveitarfélaga sem fór fram í byrjun desember.

Dec 18, 2025

24 min

Dec 9, 2025

17 min

30 ár eru frá því að sveitarfélögin tóku við rekstri grunnskólanna frá ríkinu og í þætti vikunnar ræðum við söguna, hvers vegna grunnskólar landsins eru reknir með stöðugum halla og hvaða lausnir standa til boða.

Dec 9, 2025

17 min

Nov 20, 2025

19 min

Í þætti vikunnar er spurt: Hver er staða sveitarfélaga í loftslagsmálum? Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum hjá Sambandinu fer yfir niðurstöður nýrrar skýrslu um stöðu sveitarfélaga í loftslagsmálum.

Nov 20, 2025

19 min

Nov 6, 2025

23 min

Gestur Ráðhússins er Saga Guðmundsdóttir aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga en hún hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtilega pistla undir nafninu Sögustund. Í nýjasta pistli Sögu var fjallað um rekstur sveitarfélaga og að hann sé að jafnaði erfiður og gangi verr en í flestum samanburðarlöndum.

Nov 6, 2025

23 min

Copyright 2025 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125