Episodes

Aug 14, 2025
Aug 14, 2025
28 min
Gestur Ráðhússins er Hjördís Eva Þórðardóttir verkefnastjóri farsældar barna hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Í þættinum verður fjallað um stofnun og tilgang farsældarráða landshluta í þágu farsældar barna.

Jul 10, 2025
Jul 10, 2025
32 min
Gestur Ráðhússins er Jón Kristófer Arnarson, garðyrkjustjóri Múlaþings og er rætt við hann um verkefnið Viljandi villt sem gengur út á það að leyfa villtum gróðri að spretta á vel völdum grænum svæðum til að styðja við líffræðilega fjölbreytni, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og jafnvel spara pening.

Jul 3, 2025
Jul 3, 2025
20 min
Gestur Ráðhússins er Ólafur Bergur Ólafsson, forstöðumaður vinnuskóla Reykjanesbæjar, þar sem fjallað er um þau miklu tækifæri er felast í þátttöku ungmenna í vinnuskólum.

Jun 11, 2025
Jun 11, 2025
25 min
Í þetta skiptið ræða Bryndís Gunnlaugsdóttir og Finnur Ricart Andrason eitt heitasta málið í samráðsgátt stjórnvalda um þessar mundir – áform um að afnema undanþágu rafveitna frá fasteignamati. Þetta hljómar kannski frekar tæknilegt, en áhrifin gætu orðið veruleg fyrir sveitarfélög víða um land til aukinna tekna og eins og útfærslan er núna gæti þetta aukið tekjur allra sveitarfélaga. Spurningunum sem velt er upp í þættinum eru m.a. hvað liggur að baki þessu frumvarpi, hvaða áhrif gæti það haft á fjárhag sveitarfélaga og hvað ættu kjörnir fulltrúar og starfsfólk sveitarfélaga að skoða til að meta hagsmuni síns sveitarfélags?

Jun 5, 2025
Jun 5, 2025
31 min
Í þessum þætti er rætt við Frey Eyjólfsson, verkefnastjóra fræðslu og kynningarmála hjá Sorpu um stöðu úrgangsmála hjá sveitarfélögum landsins. Farið er yfir þær breytingar sem hafa orðið á undanförnum árum á flokkunarkerfi landsins í kjölfar þess að hringrásarlögin tóku gildi um áramótin 2023, hvaða árangur hefur náðst og hvaða áskoranir sveitarfélögin standa nú frammi fyrir í því að stuðla að hringrásarhagkerfi.

May 19, 2025
May 19, 2025
26 min
Fyrir Alþingi er til umfjöllunar frumvarp um breytingar á jöfnunarsjóði. Hvað þýða þessar breytingar fyrir sveitarfélögin? Árni Sverrir Hafsteinsson, sérfræðingur hjá innviðaráðuneytinu í málefnum Jöfnunarsjóðs, fer yfir markmið frumvarpsins og áhrif á sveitarfélög með okkur.

May 19, 2025
May 19, 2025
15 min
Fyrsti þáttur af Ráðhúsinu, hlaðvarpi Sambands Íslenskra sveitarfélaga er kominn í loftið. Gestur þáttarins er Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambandsins, sem fer yfir starfsemi Sambandsins og helstu verkefni.


