Episodes

Oct 15, 2026
Oct 15, 2026
27 min
Í Ráðhúsi dagsins er rætt við Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar um reynslu sveitarfélagsins af því að taka á móti og þjónusta börn með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Halldóra starfar einnig hjá Reykjanesbæ í þessum málaflokki og deilir með okkur dýrmætum fróðleik sem nýst gæti öðrum sveitarfélögum.

Oct 1, 2026
Oct 1, 2026
24 min
Í Ráðhúsi dagsins ræðir Finnur við Líf Lárusdóttur, bæjarfulltrúa Akraneskaupstaðar, um innleiðingu þeirra á Föruneyti barna. Farið er yfir árangur, áskoranir og tækifæri fyrir önnur sveitarfélög sem felast í innleiðingu þessa mikilvæga verkefnis sem stuðlar að aukinni vellíðan barna með betri samskiptum og áherslu á leik.

Sep 24, 2026
Sep 24, 2026
22 min
Í þessum óhefðbundna Ráðhússþætti erum við í beinni frá Landsþingi Sambandsins 2026 á Akureyri. Rætt er við Hjördísi Ýr Johnson, Skúla Helgason, Braga Bjarnason og Róbert Ragnarsson sem stýrðu umræðum í mismunandi hópum stefnumörkunarvinnu sveitarstjórnarstigsins fyrir árin 2026-2030.

Sep 23, 2026
Sep 23, 2026
32 min
Í Ráðhúsinu að þessu sinni ræðir Finnur við Jón Björn Hákonarson, fráfarandi fomann Sambandsins, um árangur og áskoranir sveitarstjórnarstigsins á liðnu kjörtímabili. Farið er um víðan völl og gerir Jón Björn m.a. grein fyrir sinni framtíðarsýn fyrir sveitarstjórnarstigið og veitir nýjum formanni, nýrri stjórn og nýkjörnum sveitarstjórnarfulltrúum góð ráð.

Sep 17, 2026
Sep 17, 2026
20 min
Í þessum þætti af Ráðhúsinu ræðir Bryndís við Valgerði Rún Benediktsdóttur, yfirlögfræðing Sambandsins, um þingmálaskrá vetrarins 2026–2027. Hvaða mál skipta sveitarfélög mestu máli, hverju þarf að fylgjast sérstaklega með og hvernig geta sveitarfélög haft áhrif á lagasetningu?

Jul 3, 2026
Jul 3, 2026
30 min
Í þessum þætti af Ráðhúsinu er gestur þáttarins Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambandsins og fjöllum við um nýbirta skýrslu sem ber nafnið Húsnæði við hæfi og er afrakstur starfshóps undir forystu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Hópurinn lagði til breytingar á reglugerð um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk og tillögur að aðgerðum sem hvoru tveggja hefur það markmið að uppfylla þörf fatlaðs fólks fyrir sértæk húsnæðisúrræði.

Jun 19, 2026
Jun 19, 2026
35 min
Í þessum þætti af Ráðhúsinu fjöllum við um uppbygging á gagnainnviðum Sambandsins, þ.e. upplýsingaveitu Sambandsins og gagnalón og hvernig gögn geta nýst sveitarfélögum og Sambandinu í starfi og hagsmunagæslu. Gestir þáttarins eru Sólveig Ástudóttir Daðadóttir, starfsmaður Sambandsins, og Óttar Guðmundsson frá Gangverk, sem er samstarfsaðili Sambandsins í þessari vinnu.

Jun 4, 2026
Jun 4, 2026
29 min
Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hann segir okkur frá stóru samstarfsverkefni um orkuskipti á Norðurlandi Eystra og Vestfjörðum (RECET). Við ræðum meðal annars hvernig orkuskipti líta út í samhengi sveitarfélaga, hver ávinningurinn er af orkuskiptum og hvaða afurðir úr RECET verkefninu geta nýst sveitarfélögum um allt land í að stíga sín næstu skref í orkuskiptum og orkunýtni.

May 22, 2026
May 22, 2026
26 min
Í Ráðhúsi vikunnar ræðum við kosningaþátttöku, hvernig persónukjör og nýliðun móta nýtt landslag og fáum nokkrar góðar ráðleggingar frá Bryndísi Gunnlaugsdóttur, lögfræðings hjá Sambandinu, um fyrstu skref eftir að nýr meirihluti hefur verið myndaður.

May 12, 2026
May 12, 2026
27 min
Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hún fer yfir helstu atriði komandi sveitarstjórnarkosninga. Við ræðum meðal annars framkvæmd kosninganna, hvað kjósendur þurfa að hafa í huga og hlutverk og ábyrgðir kjörstjórna.


